
Yst
Ingunn Stefánía Svavarsdóttir
Error: No posts found.
Make sure this account has posts available on instagram.com.
Bragginn
Bragginn Yst í Öxarfirði er í 26 km fjarlægð frá Vatnajökuls Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum og Ásbyrgi.
Hann er stúdíó og sýningaraðstaða Ystar.
Bragginn Yst, sem er af amerískri gerð var byggður árið 1964 sem útigöngufjárhús og hlaða og notaður sem slíkur þar til endurbygging hófst aldamótaárið 2000. Hann hefur staðist jarðskjálfta uppá amk 6,2 á Richter og fé sem þar gekk var að jafnaði hraust og þreifst vel.
Menntun
– Fjöldi námskeiða af veraldlegum, sálfræðilegum og listrænum toga.
– Myndlistarskólinn á Akureyri. Fornám, málun og lokapróf úr fagurlistadeild 1998-2002.
– Håkon Öen. Fjölskyldumeðferðarnám 1985-1988.
– Esra S. Pétursson. Sálkönnun 1981-1984.
– Göteborgs Universitet Sverige. M.Sc. í sálarfræði 1981.
– Háskóli Íslands. Heimspekileg forspjallsvísindi og sænska 1978.
– Háskóli Íslands. B.A. í sálarfræði og uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda 1977.
– Roosvelt University, Chicago, USA. Computer Science 1972.
– MA-stúdent af náttúrufræðibraut 1971.
Störf
– Félagi í SÍM, starfar einvörðungu að list sinni, í stjórn Myndlistarfélagsins 2009-2010. Félagi í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík.
– Sveitarstjóri í Öxarfirði í áratug og sat í hreppsnefnd þrjú kjörtímabil.
– Þátttaka í stjórnum og nefndum af ýmsu tagi, bæði heima í héraði, í landshlutanum og á landsvísu.
– Varaþingmaður eitt kjörtímabil með örsetu á þingi, flutti þingsályktunartillögu um úrbætur í vegamálum og sótti FAO ráðstefnu til Hollands um “Konur í dreifbýli” fyrir Íslands hönd.
– Frábitin flokkspólitík, óflokksbundin en fylgist með þjóðmálum og heimsmálum eins og fugl á flugi. Steypi mér niður í frjálsu falli, þegar svo ber undir og segi mína skoðun „í verki“.
– Þjónustu- og iðnaðarstörf frá 12 ára aldri og síðar kennsla og uppeldisstörf með náminu.
Sýningar:
Einkasýningar:
Nýr vinkill Braggasýning 2016
Beggja skauta byr Braggasýning á sólstöðum 2015 – tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2015
Samsýningar:
Þitt er valið – eða? Björgum jörðinni Verksmiðjan Hjalteyri í júní 2015
Móðirin Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi. Safnahúsið á Húsavík, september – desemberloka 2015
Menningarstyrkir:
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra 2015
Tilnefning til Eyrarrósarinnar 2015
Uppbyggingarsjóður Norðurlands styrkti sýninguna; beggja skauta byr 2015
——————-